Nú er komin í birtingu fyrsta herferðin á vegum AUGA sjóðsins, fyrir SAFT, samtök um vitundarvakningu um jákvæða og örugga notkun barna, unglinga og fullorðinna á Netinu og í tengdum miðlum.
Herferðin snýst um að hvetja til heilbrigðari samskipta á netinu. Markhópur verkefnisins er fyrst og fremst börn og unglingar í efri hluta grunnskólans, 10-16 ára, og foreldrar barna á þeim aldri. Einkunnarorð herferðarinnar eru: “Gættu að hvað þú gerir á netinu – það sjá það allir.” Vodafone er fjárhagslegur bakhjarl verkefnisins.
Smelltu hér til að sjá auglýsingarnar.
Smelltu hér, á heimasíðu AUGA, til að fræðast nánar um AUGA og SAFT herferðina.
Nánar um AUGA herferðina og aðstandendur hennar.
Auga er stuðningssjóður stofnaður af samtökum og fyrirtækjum í auglýsingaiðnaðinum, með það hlutverk að styðja gerð og birtingar auglýsingaherferða fyrir góð málefni. Með virkum stuðningi eftirtalinna aðila eiga fjárlítil samtök kost á auglýsingaherferð í öllum helstu fjölmiðlum landsins, þeim að kostnaðarlausu.
Aðilar að AUGA:
- Samband íslenskra auglýsingastofa (SÍA)
- Félag íslensks markaðsfólks (ÍMARK)
- Samtök auglýsenda (SAU)
- 365 prent- og ljósvakamiðlar
- Árvakur
- Birtíngur útgáfufélag
- Ríkisútvarpið
- Skjárinn
- AFA JC Decaux
Þetta eru stofnaðilar og núverandi aðilar að AUGA. Capacent vinnur alla rannsóknavinnu fyrir AUGA verkefnið.
SAFT valið úr hópi umsækjenda
Verkefnið hófst með því að auglýst var eftir umsóknum í sjóðinn. Stjórn AUGA valdi síðan SAFT úr u.þ.b. 30 umsóknum. Unnin var skýrsla um verkefnið (hugmyndavaki) sem hugmyndasmiðir á SÍA stofum fengu í hendurnar til að byggja á sína hugmyndavinnu. Notast var við niðurstöður úr rannsóknum Capacent (rýnihópar; foreldrar/börn/unglingar). Í framhaldi þróunar- og hugmyndavinnu hefur nú verið unnin sú auglýsingaherferð sem er í birtingu í öllum helstu fjölmiðlum landsins.
Af hverju SAFT?
SAFT er vakningarverkefni á vegum Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra um jákvæða og örugga notkun barna og unglinga á Netinu og í tengdum miðlum. Net- og farsímanotkun barna og unglinga verður sífellt miðlægari í lífi þeirra. Netið hefur breytt miklu í samskiptum fólks. En í skjóli nafn- eða persónuleyndar virðast hefðbundnar samskiptareglur á Netinu og í tengdum miðlum oft allt aðrar en í hefðbundnum samskiptum.
Hér hefur komið upp vandamál sem mikil þörf er að takast á við. Verkefnið er í stuttu máli að ná til og auka skilning fólks á því að sömu samskiptareglur gilda á Netinu og tengdum miðlum og í hefðbundnum samskiptum. Einnig að auka umræðu og vitund fólks um málið og hvernig hægt er að leysa það; að auka ábyrgð í netsamskiptum. Það liggur því mikið við að stemma stigu við þeim vanda sem virðist vera í uppsiglingu með óvarlegri notkun á þeirri tækni sem netið, símtæknin og tölvuleikir bjóða upp á.
Umfang vandans hefur ekki verið kortlagt nákvæmlega ennþá en t.d. virðast vera þó net- og farsímaeineltistilfelli fara vaxandi. Til framtíðar litið gæti vandinn vaxið með tilkomu nýrrar tækni, t.d. þriðju kynslóðar síma. Vandinn er þó ekki tæknilegs eðlis heldur siðferðilegur, spurning um rétt eða rangt, öruggt eða hættulegt.
SAFT hefur unnið síðustu ár að þessu verkefni ásamt Heimili og skóla og svo verður áfram.
AUGA í framtíðinni
Auglýsinga- og fjölmiðlafagið hefur sameinast um AUGA með það að markmiði að styðja í framtíðinni góð málefni í samfélaginu á markvissan hátt með afli auglýsinga. Á þessu ári verður auglýst eftir nýju verkefni til að styðja með gerð og birtingu auglýsingaherferðar, viðkomandi að kostnaðarlausu.
Mæling árangurs verður í samstarfi við Capacent á Íslandi.
Til AUGA geta þeir sótt stuðning sem vinna af vanefnum að ýmsum samfélagslegum þjóðþrifamálum, stuðning í formi auglýsingaherferðar, til að kynna sitt starf í samfélaginu. Herferð sem er skipulögð, hugsuð, hönnuð og birt í fjölmiðlum þeim að kostnaðarlausu.

