Auglýsingar afl til góðra verka

AUGA er góðgerðarsjóður sem er ætlað að gera samtökum sem sinna samfélagslegu hjálparstarfi kleift að ná betri árangri í starfi sínu með því að beita afli auglýsinga í þeirra þágu.

Það er sérstaða sjóðsins að ekki er afhent fjármagn til umsækjenda heldur fá umsækjendur gjafsókn með sitt málefni í fjölmiðlum.

Styrkþegar fá sér að kostnaðarlausu gerð og birtingu auglýsingherferðar. Stofur innan vébanda SÍA leggja til vinnu, auglýsendur fjármagn og fjölmiðlar leggja til birtingapláss.

Stjórn AUGA sem er skipuð 9 fulltrúum stofnenda sjóðsins auglýsir eftir umsóknum og ákveður hvaða verkefni fá auglýsingaherferð hjá sjóðnum. Við mat á umsóknum er haft í huga hversu vel auglýsingar gagnast verkefninu og hversu brýnt verkefnið er. Stefnt er að því að vinna 1-2 herferðir á ári.

Stefnt er að því að veita að minnsta kosti einu til tveimur málefnum brautargengi á hverju ári. Auglýst er eftir umsóknum að vori og verður öllum umsækjendum svarað, hvort sem umsókn hlýtur brautargengi eða ekki.

Herferš į vegum SAFT: Gęttu aš hvaš žś gerir į netinu ...
Smelltu hér til aš sjį SAFT auglżsingarnar.
Nįnar um AUGA herferšina og ašstandendur hennar.
Heimasķša SAFT

 


Samstarfsašili: